Sýn

Sýn (1)

Sýn

April 20 2015 Written by Published in Sýn

Þann 6. október 2008, tapaði íslenska fullveldið sakleysi sínu, þá tæplega 90 ára gamalt, - mannorð okkar var dregið niður í svaðið og eftir stendur að glíma við óvætti í líki yfirvofandi mögulegra gjaldþrota – einstaklinga, fyrirtækja og jafnvel þjóðarinnar. Eftir að hafa sýnt heiminum greinilega hvað ekki virkar, ber okkur nú að endurreisa heiður okkar með því að sýna heiminum hvað virkar fyrir næstu 90 árin. Sýn okkar er að Ísland komi til baka varanlega sterkt og sjálfstætt og í fremstu röð hvað varðar tækni og siðfræði.

Við viljum sjá Ísland verða samfélag til fyrirmyndar og það til framtíðar. Við viljum sjá meira en lagfæringu gamla kerfisins sem við höfum svo viðeigandi sannað að var gallað. Við viljum sjá nýjan hugsunarhátt.

Gagnsæi og ágæti (excellence) eru lykillatriði í að tryggja réttsýna framtíð og hagsæld - gagnsæi í pólitísku og efnahagslegri ákvarðanatöku, í augum innlendra sem og erlenda aðila. Ágæti er hægt að ná með því að mynda ráð viturra manna undir forystu forseta að hluta til í nýju hlutverki. Ráðið yrði skipað heiðursfulltrúum frá hinum ýmsu starfsstéttum. Hlutverk ráðsins væri að skoða frumvörp frá Alþingi og annað hvort samþykja þau eða beita neitunarvaldi  og þá með tillögum um breytingar. Ráðið hefði rétt til að kynna eigin lagafrumvörp varðandi hagfræði, atvinnu og sjálfbærni. Markmiðið er að mynda ferli sem kemur hæfni og hagsmunaaðilum  kerfisbundið saman til gagnsærrar ákvarðanatöku.

Trúverðugleiki frelsis í nútíma þjóðfélagi ræðst af því að hvað miklu leyti þjóðfélagið getur búið þegnum sínum öruggt lífsviðurværi á sanngjarnan hátt og með virðingu fyrir hverjum og einum. Þegar best lætur er samfélagið eins og "fjölskyldu-fyrirtæki" þar sem samheldni er sjálfsögð - "fjölskylda" er táknmynd hóps með mismunandi hlutverk sem verka hvert um sig fyrir hópinn og þar vegur hver annan upp. - það er ekkert atvinnuleysi í fjölskyldu og allir hafa hlutverk. -  "fyrirtæki" þýðir að við verðum að láta til okkar taka í fjandsamlegu, alþjóðlegu samkeppnis-umhverfi - Ísland hefur allar forsendur til þess. Þetta er áskorunin sem við stöndum frammi fyrir þegar við sköpum íslenska módellið - að rækta þjóðrækið form af sjálfsviljugri, gagnsærri samheldni en vera samt samkeppnishæf á alþjóðlegum markaði. Þetta krefur af okkur nýsköpun í siðfræði hins opinbera lífs alveg eins mikið og í tækni.

Sjálfbærni er lykillinn að íslensku módelinu - orka, fæðutegundir, hreint loft og vatn - við eigum meira en nóg, við skulum nýta okkar eigið frekar en að vera háðir öðrum. Framtíðarsýn okkar fyrir íslenska módelið er Ísland eins og orku miðlari – sjálfbær og aflögufær til útflutnings. Sjálfbærni þýðir í okkar takti og ekki um efni fram. Við megum ekki lifa á kostnað komandi kynslóða. Það þýðir einnig fúsleiki til að þjóna – björgunarsveitirnar eru fyrir myndir sem ættu að vera á fleiri sviðum, t.d.  erum við meðmæltir myndun íslensks "orkuverndar" þar sem hver vinnufær Íslendingur þjónar í nokkra mánuði við að viðhalda sjálfbærni landsins.